Fréttir
11.2.2009
Þegar áfallið dynur yfir skipta rétt viðbrögð öllu máli
Á vel sóttri morgunverðarráðstefnu á Grand Hótel í morgun, miðvikudaginn 11. febrúar 2009, var fjallað um áfallastjórnun frá ýmsum sjónarhornum. Um 200 hundruð manns sóttu ráðstefnuna sem haldin var á vegum KOM almannatengsla, Vinnuverndar ehf, Humus og Samtaka atvinnulífsins.
Fram kom í máli framsögumanna að mikilvægt væri að standa faglega að málum þegar „hið óhugsanlega gerist". Ekki væri leyst úr áföllum á einni nóttu og mikilvægt væri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum áfalla á rekstur og ímynd fyrirtækja, líðan starfsmanna, samskipti við nærsamfélagið og ýmsa aðra þætti, og leita utanaðkomandi stuðnings þegar þess væri þörf.
Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM almannatengsla, ræddi samskiptamál fyrirtækja sem lenda í áföllum. Hann sagði að í nútíma fjölmiðlaumhverfi væri versti kosturinn í áföllum að segja ekki neitt. Nauðsynlegt væri að miðla réttum upplýsingum til allra hlutaðeigandi aðila á fumlausan hátt um leið og kostur væri á. Glærur Jóns má sjá hér.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Ráðgjafahússins, sagði að íslensk fyrirtæki hefðu almennt stefnt á toppinn fyrir kreppuna en atburðir síðustu mánaða hefðu kollvarpað öllum áætlunum. Hún lagði áherslu á að jafnvel þó að áætlanagerð væri nánast ómöguleg til lengri tíma við núverandi aðstæður, væri mikilvægt að marka stefnu um rekstur fyrirtækja, jafnvel þó aðeins væri litið til nokkurra vikna eða mánaða. Hér eru glærur Þórdísar.
Högni Óskarsson, geðlæknir og eigandi Humus, fór yfir langtímaáhrif áfalla á heilsu og á vinnufærni starfsmanna og afkomu fyrirtækja. Hann rakti þau líkamlegu og andlegu einkenni sem fylgja langvarandi streituástandi og hvernig bregðast þyrfti við þeim. Fram kom í máli Högna að mikilvægt væri fyrir stjórnendur að vera sýnilegir á tímum erfiðleika og virkja starfsfólk við úrlausn mála. Glærurnar hans Högna eru hér.
Magnús Böðvarsson, læknir og stjórnarformaður Vinnuverndar ehf., ræddi um fyrirbyggjandi aðgerðir á vinnustað. Í áföllum þyrftu fyrirtæki að leggja enn meiri áherslu en ella á heilsuvernd og huga að þáttum eins og starfsumhverfi, heilsufarsmælingum, næringarráðgjöf, álags- og streitustjórnun. Hér má finna glærur Magnúsar.
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, var fundarstjóri og að loknum framsöguerindum stýrði Svali Björgvinsson, starfsmannastjóri Kaupþings, líflegum pallborðsumræðum.
Hér má sjá fleiri myndir frá ráðstefnunni.








