Særún Ósk Pálmadóttir er ráðgjafi hjá KOM ráðgjöf. Særún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sviði samskiptaráðgjafar og almannatengsla og kemur til KOM frá Högum þar sem hún starfaði sem samskiptastjóri félagsins en þar áður sem ráðgjafi hjá samskiptafélaginu Aton.JL í þrjú ár. Á árunum 2018 og 2019 var hún einnig kynningarstjóri tónlistarhátíðarinnar Myrkir músíkdagar. Þá hefur Særún starfað hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tempo sem sérfræðingur í samskiptum og sem verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR. Hún hefur sömuleiðis sinnt stundakennslu í krísusamskiptum við Háskólann á Bifröst.
Særún er með B.Sc.-gráðu
í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í almannatengslum
frá Háskólanum í Lundi og Háskólanum í Stirling.